Tónastöðin er miðsvæðis í Reykjavík -- í Skipholti 50d. Til okkar er auðvelt og fljótlegt að komast hvaðanæva að, hvort heldur er á einkabílum eða strætisvögnum. Við verslunina eru næg bílastæði.
Verslunin er í björtu og rúmgóðu húsnæði -- stærsta hljóðfæraverslun landsins - þar sem hljóðfæri og annað sem í versluninni fæst fær að njóta sín. Markmiðið er að viðskiptavinum okkar líði vel þegar þeir koma í verslunina, hafi gott rými og næði til að skoða og gaumgæfa þá vöru sem vekur áhuga þeirra.
Tónastöðin býður upp á mikið úrval hljóðfæra, fylgihluta og nótnahefta. Verslunin er sú stærsta á sínu sviði hér á landi og leggur áherslu á góða og persónulega þjónustu við alla viðskiptavini sína.